Umgengni um nytjastofna sjávar

Laugardaginn 16. desember 2000, kl. 11:28:56 (3479)

2000-12-16 11:28:56# 126. lþ. 51.13 fundur 366. mál: #A umgengni um nytjastofna sjávar# (kostnaður við veiðieftirlit) frv. 162/2000, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur, 126. lþ.

[11:28]

Frsm. sjútvn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Við meðferð þessa máls í hv. sjútvn. féllu niður orðin ,,eða áttunda veiðiferð`` sem gerir það að verkum að lagatextinn er illskiljanlegur.

Með þessu frv. sem hv. sjútvn. leggur fram er bætt úr þessum annmarka og lagagreinin gerð skiljanleg og eðlileg.