Frestun á fundum Alþingis

Laugardaginn 16. desember 2000, kl. 16:23:54 (3516)

2000-12-16 16:23:54# 126. lþ. 52.10 fundur 375. mál: #A frestun á fundum Alþingis# þál., forsrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 126. lþ.

[16:23]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis skv. 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillagan hljóðar svo:

,,Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 15. desember 2000 eða síðar, ef nauðsyn krefur, enda verði það kvatt saman til fundar á ný eigi síðar en 23. janúar 2001.``

Tillagan skýrir sig sjálf.