Tekjuskattur og eignarskattur

Laugardaginn 16. desember 2000, kl. 18:04:16 (3528)

2000-12-16 18:04:16# 126. lþ. 52.7 fundur 264. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (söluhagnaður hlutabréfa o.fl.) frv. 149/2000, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 126. lþ.

[18:04]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um það fráleita ákvæði í þessu frv. að lækka skatthlutfall á söluhagnaði, þann hlutann sem verið hefur í rúmum 38% í 10%. Þessu mótmælum við harðlega á sama tíma og verið er að leggja aukna skatta á almenning í landinu.