Jólakveðjur

Laugardaginn 16. desember 2000, kl. 18:29:54 (3538)

2000-12-16 18:29:54# 126. lþ. 54.92 fundur 230#B jólakveðjur#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 126. lþ.

[18:29]

Forseti (Halldór Blöndal):

Þá er komið að lokum seinasta fundar Alþingis á þessu ári.

Góður starfsandi hefur einkennt haustþingið og er afgreiðsla fjárlaga ótvírætt merki um það. Fjárlög voru nú afgreidd óvenju snemma og vænti ég þess að við getum staðið þannig að málum í framtíðinni. Ég vil láta í ljós sérstakar þakkir mínar til þingmanna fyrir gott samstarf við þá.

Jólahátíðin er í nánd og gefst nú hv. alþingismönnum og starfsfólki Alþingis tækifæri til að vera samvistum við sína nánustu um hátíðarnar og njóta með þeim friðsemdar jólanna. Ég færi alþingismönnum öllum, svo og starfsfólki Alþingis, bestu óskir um gleðileg og farsæl jól og færi þeim bestu þakkir fyrir samstarfið á því ári sem nú er senn á enda. Þeim sem eiga um langan veg að fara heimleiðis óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári. Landsmönnum öllum sendi ég mínar bestu jóla- og nýársóskir.