Jólakveðjur

Laugardaginn 16. desember 2000, kl. 18:32:46 (3540)

2000-12-16 18:32:46# 126. lþ. 54.92 fundur 230#B jólakveðjur#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 126. lþ.

[18:32]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég þakka hv. 4. þm. Reykn., Rannveigu Guðmundsdóttur hlý orð og góðar óskir í minn garð og minnar fjölskyldu og starfsmanna Alþingis og hv. þingmönnum fyrir að taka undir þau orð með því að rísa úr sætum.

Ég endurtek þakkir mínar um innilegustu jóla- og nýársóskir til hv. þm. og alls starfsfólks Alþingis.