Þingfrestun

Laugardaginn 16. desember 2000, kl. 18:33:21 (3541)

2000-12-16 18:33:21# 126. lþ. 54.91 fundur 229#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 126. lþ.

[18:33]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands gjörir kunnugt: ,,Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 126. löggjafarþings, frá 15. desember 2000 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 23. janúar 2001.

Gjört á Bessastöðum, 15. desember 2000.

Ólafur Ragnar Grímsson.

--------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 126. löggjafarþings, er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýárs.