Hægt er að
sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um
uppsetningu á
Netscape fyrir Word Perfect skjöl. 126. löggjafarþing 20002001.
Þskj. 656 404. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um skýrslu Byggðastofnunar um stöðu sjávarbyggða.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1.
Hvernig hyggst ráðherra byggðamála fylgja eftir skýrslu Byggðastofnunar um stöðu
sjávarbyggða sem út kom í desember sl.?
2.
Hyggst ráðherra beita sér gagnvart nefnd um endurskoðun á stjórnkerfi fiskveiða í ljósi
veikrar stöðu minni sjávarbyggða, sbr. áðurnefnda skýrslu, sem rekja má m.a. til ótryggs
aðgangs að veiðiheimildum?