Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 882  —  445. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2000, um breytingu á XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Hauk Jóhannesson og Högna S. Kristjánsson frá utanríkisráðuneyti og Jónínu S. Lárusdóttur frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 91/2000, um breytingu á XI. viðauka (Fjarskiptaþjónusta) við EES-samninginn. Með samþykkt tilskipunar 2000/31/EB um rafræn viðskipti sem lagt er til að verði felld inn í XI. viðauka EES-samningsins er stefnt að því að móta sameiginlegan lagaramma sem tryggi frjálst flæði þjónustu í upplýsingasamfélagi á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni R. Árnason, Steingrímur J. Sigfússon og Jónína Bjartmarz voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 14. mars 2001.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Þórunn Sveinbjarnardóttir.


Jón Kristjánsson.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Einar K. Guðfinnsson.


Katrín Fjeldsted.