Ferill 498. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 917  —  498. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um aðild að samningi um öryggi starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Heiðar Atlason frá utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til þess að Ísland gerist aðili að samningi um öryggi starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna sem gerður var í New York 9. desember 1994.
    Undanfarin ár hefur Ísland tekið aukinn þátt í friðargæslu innan vébanda Sameinuðu þjóðanna og ljóst er að sú starfsemi mun aukast á næstu árum. Ráðstafanir til að tryggja öryggi og vernd starfsmanna Sameinuðu þjóðanna og tengdra starfsmanna hafa ekki verið taldar fullnægjandi til þessa og er samningnum ætlað að bæta úr því ástandi.
    Lára Margrét Ragnarsdóttir og Einar K. Guðfinnsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.


Alþingi, 21. mars 2001.

Tómas Ingi Olrich,
form., frsm.
Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Jón Kristjánsson.

Rannveig Guðmundsdóttir.
Árni R. Árnason.
Steingrímur J. Sigfússon.

Jónína Bjartmarz.