Ferill 639. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1233  —  639. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2001, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Stefán Hauk Jóhannesson og Högna S. Kristjánsson frá utanríkisráðuneyti og Ólaf Walter Stefánsson frá dómsmálaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 4/2001, um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/26/EB, um samræmingu á lögum aðildarríkjanna um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um breytingar á tilskipunum ráðsins 73/239/EBE og 88/357/EBE (Fjórða tilskipun um ökutækjatryggingar). Ákvörðunin kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Á fundum nefndarinnar kom fram að tilskipunin fjallar eingöngu um að tryggja að tjónþoli geti snúið sér til aðila í heimalandi sínu með kröfu um bætur fyrir tjón sem ökutæki, sem vátryggt er og skráð í öðru aðildarríki, hefur valdið í öðru aðildarríki en því sem tjónþoli býr í. Tilskipunin fjallar hins vegar hvorki um þann efnislega rétt sem tjónþoli kann að eiga til bóta né um tjónauppgjörið sjálft og innihald þess.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni R. Árnason var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 8. maí 2001.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Lára Margrét Ragnarsdóttir.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Jónína Bjartmarz.


Einar K. Guðfinnsson.



Jóhann Ársælsson.


Steingrímur J. Sigfússon.