Hægt er að
sækja Word Perfect útgáfu af skjalinu, sjá upplýsingar um
uppsetningu á
Netscape fyrir Word Perfect skjöl. 126. löggjafarþing 20002001.
Þskj. 1302 627. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77 23. maí
2000.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Bogason og Dís Sigur
geirsdóttur frá dómsmálaráðuneyti, Sigrúnu Jóhannesdóttur frá Persónuvernd og Hallgrím
Snorrason og Skúla Guðmundsson frá Hagstofu Íslands.
Þá bárust nefndinni umsagnir frá Persónuvernd, Landspítalanum, Lögmannafélagi Íslands,
Krabbameinsfélagi Íslands, Læknafélagi Íslands, Hagstofu Íslands og Félagi íslenskra hjúkr
unarfræðinga.
Með frumvarpinu er lagt til að Persónuvernd verði heimilað að ákveða og auglýsa í Stjórn
artíðindum að hér á landi gildi gerðir Evrópubandalagsins (EB) á grundvelli 25. gr. tilskipun
ar frá 24. október 1995, nr. 95/46/EB, um að land utan EB teljist tryggja nægilega vernd í
krafti laga sinna eða alþjóðaskuldbindinga um vernd friðhelgi einkalífs og grundvallarfrelsis
og réttinda manna. Þá eru lagaskilaákvæði tilskipunarinnar gerð afdráttarlausari í frumvarp
inu og lagt til að ákvæði laganna um öryggi við vinnslu persónuupplýsinga verði fyllri og
endurspegli betur ákvæði tilskipunarinnar þar að lútandi. Loks er í frumvarpinu að finna
ákvæði sem ætlað er að lögfesta almennt ákvæði 14. gr. tilskipunarinnar um andmælarétt hins
skráða.
Mælir nefndin með því að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er til
laga um í sérstöku þingskjali. Í fyrsta lagi telur nefndin ástæðu til að tekið verði skýrar fram
í lögunum hvenær ábyrgðaraðila er heimilt að afhenda félaga-, starfsmanna- eða viðskipta
skrár. Í öðru lagi lítur nefndin svo á að Persónuvernd eigi við sérstakar aðstæður að geta
heimilað vinnslu almennra persónuupplýsinga eins og hún getur gert við vinnslu viðkvæmra
persónuupplýsinga. Þá telur nefndin ekki rétt að Persónuvernd setji Hagstofu Íslands fyrir
mæli um gerð, notkun og innihald skráa sem Hagstofan heldur yfir þá sem andmæla því að
nöfn þeirra séu notuð í markaðssetningarstarfsemi. Því leggur nefndin til að Hagstofan setji
sjálf slíkar reglur í samráði við Persónuvernd. Loks er gerð tillaga um orðalagsbreytingar og
lagfæringar á texta laganna í samræmi við tilskipunina.
Sverrir Hermannsson, Ólafur Örn Haraldsson og Hjálmar Jónsson voru fjarverandi við
afgreiðslu málsins.
Ögmundur Jónasson sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykkur af
greiðslu málsins.