Ferill 7. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1335  —  7. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um endurskoðun viðskiptabanns á Írak.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Stefán Skjaldarson, Hauk Ólafsson og Hjálmar W. Hannesson frá utanríkisráðuneyti. Þá hefur nefndinni borist fjöldi skýrslna og gagna um málið frá utanríkisráðuneyti og frá 1. flutningsmanni tillögunnar, Steingrími J. Sigfússyni.
    Umræða hefur farið vaxandi um að endurskoða beri framkvæmd viðskiptabanns á Írak. Kemur þar margt til. Aðstæður almennings í landinu eru mjög bágar. Þótt heldur hafi horft til hins betra samkvæmt skýrslu aðalritara Sameinuðu þjóðanna frá í mars sl. á það aðeins við um hluta landsins. Ástandið stendur í stað eða fer versnandi annars staðar. Á sama tíma er upplýst að stjórnvöld í Írak láta verulega fjármuni liggja óhreyfða sem fengist hafa innan ramma verkefnis Sameinuðu þjóðanna „olía fyrir matvæli“ og ætlaðir eru til kaupa á mat og lyfjum. Ljóst er einnig að stjórnvöldum í Írak hefur tekist með margvíslegum hætti að veikja þetta verkefni og jafnvel draga sér fé í tengslum við það.
    Þau þjóðarbrot sem orðið hafa verst fyrir barðinu á harðstjórn Saddams Husseins, shía- múslimar í Suður-Írak og Kúrdar í Norður-Írak, hafa af því þungar áhyggjur að verði viðskiptabanninu aflétt muni ofsóknir Íraksstjórnar á hendur þeim magnast. Eftir að eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna urðu að hverfa frá Írak 1998 er ekkert fylgst með því á vegum samtakanna hvort eða hvernig yfirvöld í Írak virða samþykktir þeirra.
    Endurskoðun framkvæmdar viðskiptabanns á Írak er því vandasamt verk. Hún hlýtur að beinast að því að leita leiða til þess að beina aðgerðunum enn frekar að því að koma í veg fyrir að ógnarstjórn Saddams Husseins komi sér upp gereyðingarvopnum og ógni öryggi heimshlutans.
    Nefndin leggur því til að tillagan verði samþykkt með svohljóðandi


BREYTINGU:


    Tillögugreinin orðist svo:
    Alþingi ályktar að styðja frumkvæði Norðmanna á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að framkvæmd viðskiptabanns á Írak verði tekin til endurskoðunar með það fyrir augum að aðgerðir Sameinuðu þjóðanna beinist enn frekar að því að hindra að harðstjórn Saddams Husseins komi sér upp gereyðingarvopnum og ógni öryggi á svæðinu.
    Alþingi fagnar stuðningi ríkisstjórnar Íslands við frumkvæði Norðmanna og hvetur hana til að stuðla að áframhaldandi framgangi málsins á alþjóðavettvangi.

    Einar K. Guðfinnsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 15. maí 2001.



Tómas Ingi Olrich,


form., frsm.


Magnús Stefánsson.


Árni R. Árnason.



Lára Margrét Ragnarsdóttir.


Jónína Bjartmarz.


Steingrímur J. Sigfússon.



Rannveig Guðmundsdóttir.


Jóhann Ársælsson.