Ferill 633. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1412  —  633. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um leigubifreiðar.

Frá 2. minni hluta samgöngunefndar.



    Með frumvarpi því sem hér er til umfjöllunar eru lagðar til grundvallarbreytingar á stjórn leigubifreiðamála í landinu. Ráðgert er að færa stjórn leigubifreiðamála frá ráðuneyti samgöngumála til Vegagerðarinnar.
    Annar minni hluti leggur áherslu á að leigubílar og leigubílaakstur séu mikilvægur þáttur í almannasamgöngum. Tryggja þarf góða og örugga þjónustu og um leið eðlileg starfskjör leigubifreiðastjóra. Mikilvægt er að bæði lögin og framkvæmd þeirra taki mið af því.
    Annar minni hluti telur að ákvæði 9. gr. frumvarpsins, sem lýtur m.a. að veitingu undanþágna frá akstri eigin bifreiðar vegna töku orlofs, sé ófullnægjandi. Veikindaréttur er óljós, svo og hvernig standa má að rekstrinum í þeim tilvikum. Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu fram upplýsingar um að framkvæmd núgildandi laga og reglna settra samkvæmt þeim hefði í einhverjum tilvikum stangast á við lög nr. 30/1987, um orlof. Var gagnrýnin m.a. fólgin í því að laugardagar og sunnudagar hefðu á sumum svæðum verið reiknaðir með í orlofstöku sem er andstætt ákvæðum laga um orlof. Til að tryggja að leigubifreiðastjórar njóti eðlilegra orlofskjara og veikindaréttar á við aðra þarf að endurskoða frumvarpið þannig að þess sé gætt að farið sé að ákvæðum orlofslaga og lögum sem lúta að veikindarétti og veitingu undanþágna eftir því sem við getur átt. Frumvarpið tekur fyrst og fremst til ýmissa krafna sem gera þarf til þessa þáttar almenningssamgangna sem er að sjálfsögðu nauðsynlegt en jafnframt þarf að gera betur grein fyrir margvíslegum réttindamálum þeirra sem sem í þessari atvinnugrein starfa.
    Annar minni hluti dregur í efa nauðsyn þess að starfræktur verði gagnagrunnur með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sérstaklega er gerð athugasemd við síðari málslið 2. mgr. 2. gr. frumvarpsins þar sem kveðið er á um að Vegagerðin geti heimilað sérstakar útstöðvar frá gagnagrunninum á bifreiðastöðvum eða hjá bifreiðastjórafélögum til þess að afgreiða undanþágur skv. 9. gr. frumvarpins. Í umsögn Persónuverndar sem barst nefndinni um frumvarpið segir eftirfarandi um þetta atriði: „Með ákvæðinu gæti Vegagerðin því veitt einstökum bifreiðastöðvum og bifreiðastjóra félögum tengingu við umrædda málaskrá sína um tölvunet. Að mati Persónuverndar skortir rök fyrir slíkri samtengingu og er þeirri spurningu ósvarað hvers vegna ekki sé hægt að veita viðkomandi bifreiðastöðvum upplýsingar um atvinnuleyfishafa á viðkomandi stöð með einfaldari og viðurhlutaminni hætti.“ Annar minni hlutin telur að sjónarmið um friðhelgi einkalífs og persónuvernd eigi að ráða ferðinni og gagnrýnir því að ætlunin sé að veita Vegagerðinni umrædda heimild.
    Samkvæmt frumvarpinu skulu leigubifreiðastjórar greiða 16.000 kr. árlegt gjald fyrir atvinnuleyfi sitt. Jafnframt er gert ráð fyrir gjaldtöku vegna ýmissar umsýslu í þessum málaflokki, sbr. 12. gr. frumvarpsins. Haldbær rök skortir fyrir þessum gjaldtökum og telur 2. minni hluti því að skoða verði forsendur þessarar gjaldtöku mun betur. Ljóst er að samgönguráðuneytið mun hafa nokkurn hag af tilfærslu þessa málaflokks til Vegagerðarinnar og gagnrýnir 2. minni hluti að ekki hafi verið gerð grein fyrir því í umsögn fjármálaráðuneytisins hversu mikið sparast hjá ráðuneytinu við þetta.
     Annar minni hluti telur að þær breytingar sem meiri hlutinn leggur til að gerðar verði á frumvarpinu séu í flestu til bóta. Frumvarpið í heild mun því væntanlega taka talsverðum breytingum til batnaðar en engu að síður er það mat 2. minni hluta að vinna þurfi frumvarpið enn betur áður en það verður afgreitt sem lög frá Alþingi.

Alþingi, 17. maí 2001.



Jón Bjarnason.