Framhaldsfundir Alþingis

Þriðjudaginn 22. janúar 2002, kl. 13:33:29 (3405)

2002-01-22 13:33:29# 127. lþ. 57.95 fundur 262#B framhaldsfundir Alþingis#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 127. lþ.

[13:33]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar alþingismanna og starfsmanna Alþingis.

Ég óska alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs. Jafnframt sendi ég landsmönnum öllum mínar bestu nýársóskir.

Ég vona að hlé það sem verið hefur á reglulegum fundum Alþingis hafi nýst alþingismönnum vel til fundahalda í kjördæmum og til annarra samskipta við kjósendur. Ég á von á því að það starf skili sér í störfum Alþingis.