Tómas Ingi Olrich:
Herra forseti. Hv. þm. Pétur Blöndal gat þess með fyrirspurn sinni að fjárln. hefði ekki tök á að fylgja eftir framkvæmdum sem hún styrkti og flutti mál sitt þannig að ætla mátti að fjárln. væri óábyrg í störfum sínum.
Þess má geta að þegar fjárln. veitir styrki vegna ýmissa erinda sem berast nefndinni eru ekki til farvegir fyrir eftirlit með þessum fjárveitingum. Þannig hefur fjárln. oft tekið á mjög brýnum málum sem síðan hafa komist í ákveðinn farveg og orðið til mikilla framfara. Það er hægt að rekja slóð um allt land, hinna bestu verkefna sem þannig hafa verið styrkt og síðan hafa ráðuneytin tekið á því að setja þessi mál í farveg eftir því sem þau hafa haft tök á. Ég held að það sé fjarri lagi að lýsa þessu verkefni svo að það sé með öllu ábyrgðarlaust af hálfu fjárln. og hún kynni sér ekki hin faglegu sjónarmið á bak við þessar umsóknir.
Ég held að í raun og veru væri ekki hægt að lýsa íslensku samfélagi sem svo menningarlega virku, eins og það er og er svo umfram önnur þjóðfélög, nema einmitt vegna þess að þannig hafi verið komið til móts við þarfir margra einstaklinga.