Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Í tilefni af fyrirspurn hv. þm. Guðjóns A. Kristjánssonar var óskað eftir upplýsingum frá Landhelgisgæslunni um útkallstíma björgunarþyrlu og svörum að öðru leyti við fyrirspurninni.
Hvað varðar fyrstu spurningu hv. þm. kemur fram í svörum Landhelgisgæslunnar að viðbragðstími TF Líf er gefinn upp ein klukkustund. Meðalútkallstími hefur þó verið um 30 mínútur í alfa-útköllum, en það ræðst nokkuð af veðri og fleiri þáttum. Einnig ræðst viðbragðstíminn af eðli útkallsins, þ.e. hversu langt er verið að fara, hvernig veðrið er á björgunarstað og á leiðinni þangað. Undirbúningur útkallsins getur verið mislangur.
Í útkallinu að Svörtuloftum var veðurhæð það mikil á Reykjavíkurflugvelli að það var á mörkum að unnt væri að setja hreyfla þyrlunnar í gang. Við það þurfti að beita sérstakri aðferð sem gerði það að verkum að lengri tíma tók að koma þyrlunni í loftið en við venjulegar aðstæður. Viðbragðstíminn var 29 mínútur þar til hreyflar þyrlunnar voru farnir að snúast og var hún komin í loftið 38 mínútum eftir útkall.
Landhelgisgæsla Íslands hefur ekki farið þess formlega á leit að bifreiðar sem aka áhöfn björgunarþyrla á flugvöll fái heimild til neyðaraksturs. Málið var hins vegar rætt fyrir nokkrum árum og mönnum þóttu verulegir annmarkar á að veita slíka heimild, m.a. samkvæmt áliti lögreglunnar.
Í gildandi reglum um neyðarakstur frá árinu 1988 er við það miðað að slík heimild sé fyrir ökutæki sem beinlínis eru notuð við löggæslu, björgun og flutning sjúkra. Þó vil ég ekki útiloka að slíkt fyrirkomulag verði skoðað frekar. Við verðum að hafa í huga að mikilvægt er að hafa takmarkaðar heimildir til neyðaraksturs. Hann getur augljóslega skapað hættu í umferðinni.
Önnur spurning hv. þm. var um hvers vegna varnarliðsþyrla hafi ekki verið kölluð út samtímis þar sem þekkt væri að erfiðar aðstæður væru til björgunar við þessa strönd.
Í svörum Landhelgisgæslunnar kemur fram að við björgunaraðgerðir við suðurströndina í mars 1997, þegar áhöfnum á Dísarfelli, Vikartindi og Þorsteini var bjargað, var talið að tæki Landhelgisgæslunnar nægðu og sú var raunin. Við Svörtuloft þótti í fyrstu nægjanlegt að TF Líf færi til björgunar en hálfri klukkustund síðar var til öryggis ákveðið að kalla þyrlu varnarliðsins til aðstoðar. Það hafði þá aldrei komið fyrir að þyrlur Landhelgisgæslunnar hefðu þurft að snúa til baka frá björgunaraðgerðum vegna bilana eins og síðar varð raunin í þessari björgunaraðgerð. Það að kalla á þyrlu varnarliðsins áður en nokkuð benti til þess að TF Líf gæti ekki lokið verkefninu var í raun frábrugðið venju.
Eftir þennan atburð hefur sú regla verið tekin upp í sjóbjörgunarstjórnstöð Landhelgisgæslunnar að kalla einnig á þyrlu varnarliðsins við svipaðar aðstæður. Það skal jafnframt tekið fram að það er einnig háð veðri að koma þyrlum varnarliðsins í loftið. Í þessu tilviki var veðrið á mörkum þess að það væri unnt.
Þriðja spurningin lýtur að því hverjum í stjórnkerfi slysavarna beri að kalla eftir aðstoð varnarliðsins og jafnframt hvers vegna það hefði dregist í þessu tilviki.
Það er sjóbjörgunarstöð Landhelgisgæslunnar sem hefur það hlutverk að kalla eftir aðstoð þyrlusveita varnarliðsins en sem svar við þessari spurningu vísa ég að öðru leyti til þess sem ég hef áður nefnt.
Að lokum er mikilvægt að undirstrika, í tilefni af fyrirspurn hv. þm., að aðstæður voru einstaklega erfiðar. Eins og fram hefur komið var veðurhæð slík að ekki mátti miklu muna að ókleift væri að senda þyrlu til aðstoðar. Landhelgisgæslan hefur farið ítarlega yfir þetta tilvik til að greina hvort betur megi gera í sambærilegum tilvikum. Sú athugun, sem ekki er lokið, hefur þegar leitt til breytinga á verklagi eins og ég nefndi áðan. Þyrlusveit varnarliðsins vann þarna einstakt björgunarafrek eins og menn vita. En bæði Landhelgisgæslan og björgunarlið í landi lögðu sitt af mörkum sem ekki má vanmeta.
Ég vil að lokum þakka hv. þm. fyrir málefnalega umræðu. Við erum vitaskuld sammála um að tryggja verði öryggi sjómanna eins og kostur er. Landhelgisgæslan hefur unnið stórvirki á sviði björgunar og það er mikilvægt að við alþingismenn sýnum þann stuðning sem hún verðskuldar.