Heimsmeistaramótið í knattspyrnu og þjónusta Ríkisútvarpsins

Fimmtudaginn 24. janúar 2002, kl. 10:31:35 (3509)

2002-01-24 10:31:35# 127. lþ. 60.94 fundur 267#B heimsmeistaramótið í knattspyrnu og þjónusta Ríkisútvarpsins# (umræður utan dagskrár), Forseti ÍGP
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 127. lþ.

[10:31]

Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):

Áður en gengið verður til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um heimsmeistaramótið í knattspyrnu og þjónustu Ríkisútvarpsins. Málshefjandi er hv. þm. Kristján L. Möller. Hæstv. menntmrh. Björn Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.