Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Eins og hv. þm. veit þá liggur fyrir að samkvæmt fjárlögum er ekki gert ráð fyrir því að innheimta þetta gjald á þessu ári. Við gerðum ráð fyrir því að innheimtan félli niður um ríflega mitt síðasta ár þegar frv. var til umfjöllunar hér í þinginu. Það liggur því fyrir að ekki er gert ráð fyrir frekari endurgreiðslu en sem frv. þá miðaðist við.
Aðrar yfirlýsingar get ég ekki gefið á þessu stigi um málið en fjárlög fjölluðu alveg um þetta mál.