Svör um sölu ríkisjarða

Mánudaginn 28. janúar 2002, kl. 15:12:27 (3600)

2002-01-28 15:12:27# 127. lþ. 61.92 fundur 277#B svör um sölu ríkisjarða# (aths. um störf þingsins), ÞBack
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 127. lþ.

[15:12]

Þuríður Backman:

Herra forseti. Hér hefur verið óskað eftir upplýsingum frá hæstv. landbrh. varðandi sölu á ríkisjörðum. Í svari hæstv. ráðherra kom fram að vísað er á heimasíðu ráðuneytisins varðandi hluta þeirra upplýsinga sem beðið var um. Ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt þá vísaði hann líka til blaðamannafundar sem haldinn var í tilefni af þessu máli þar sem hann nefnir að málinu hafi verið gerð mjög góð skil.

Herra forseti. Ég óska eftir því að hæstv. landbrh. geri okkur grein fyrir því hvort hann telji að blaðamannafundir, þó góðir séu, nægi sem svar við fyrirspurnum hv. þingmanna? Telur hann það viðeigandi svar við fyrirspurnum að vísa til blaðamannafunda? Ég kannast ekki við að það sé nægilegt samkvæmt þingsköpum. Ég vona að þetta sé á misskilningi byggt og framvegis verði svörum beint í þingsal en ekki vísað til blaðamannafunda.