Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég hef í sjálfu sér ekki miklu við þetta að bæta. Ég veit að hv. þm. hefur kynnt sér þessi mál og hefur mikinn áhuga á þeim. En það er rétt að þarna hafa fundist mjög þykk setlög sem gefur tilefni til bjartsýni og enginn þarf að efast um áhuga minn á þessu máli, ekki síst vegna þess að það svæði sem á í hlut er norðaustur af landinu og ekki mundi saka að fá þar aukin atvinnutækifæri og í framhaldi af því væntanlega styrkingu byggðar.
En ég þakka hv. þm. fyrir að vekja máls á þessu.