Opnun Þjóðminjasafnsins

Mánudaginn 28. janúar 2002, kl. 15:48:18 (3624)

2002-01-28 15:48:18# 127. lþ. 61.1 fundur 275#B opnun Þjóðminjasafnsins# (óundirbúin fsp.), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 127. lþ.

[15:48]

Forseti (Halldór Blöndal):

Áður en hv. þm. tekur til máls vil ég minna á að í næstsíðustu mgr. 49. gr. þingskapa segir:

,,Í allt að hálftíma á fyrir fram ákveðnum fundi getur forseti heimilað þingmönnum að bera fram munnlegar fyrirspurnir til ráðherra. Hvor um sig, fyrirspyrjandi og ráðherra, má ekki tala oftar en þrisvar, eigi lengur en tvær mínútur í fyrsta sinn og eigi lengur en eina mínútu í annað og þriðja sinn.``