Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Loftferðamál hafa mikið verið rædd að undanförnu og það er skoðun okkar í Samfylkingunni a.m.k. að þau vandræði sem upp hafa komið hafi fyrst og fremst orsakast af því að annars vegar er Flugmálastjórn ætlað að hafa öryggiseftirlit og hins vegar að þjónusta flugrekendur. Þetta hefur ekki farið nægilega vel saman. Þessari hugmyndafræði er ætlað að viðhalda og því greiðum við atkvæði gegn frv. vegna þess að við höfum ekki trú á þessum vinnubrögðum.
Virðulegi forseti. Í öðru lagi viljum við mótmæla þeim vinnubrögðum sem voru viðhöfð í nefndinni. Við fengum ekki að kalla fyrir alla þá sem við vildum kalla fyrir.
Í þriðja lagi er væntanleg óháð bresk rannsókn um þetta sem ég held að hefði getað leitt okkur verulega áfram í þessu máli í stað þess að klára það nú.
Í fjórða lagi, virðulegi forseti, hafa minni flugrekendur á Íslandi nýverið óskað eftir því að málið verði ekki klárað fyrr en þeir hafa komið fyrir nefndina og hvet ég því hv. formann samgn. eindregið að kalla málið á nýjan leik inn í nefndina milli 2. og 3. umr. Þá getum við hugsanlega náð að breyta því þannig að við getum staðið að þessu einnig.