Kristján L. Möller:
Herra forseti. Hér eru greidd atkvæði um það nýtilegasta í þessu frv., þ.e. hvort fella skuli niður hinn illræmda flugmiðaskatt eða flugleiðsögugjöld. Við, nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar, höfum flutt tillögu um þetta og erum sammála því að flugmiðaskatturinn sé lagður af. Hins vegar er sá galli á gjöf Njarðar að ekki er að finna í þessu frv. neinar heimildir til samgrh. um frá hvaða tíma skatturinn skuli felldur niður. Við teljum að slíka heimild vanti í frv. Hæstv. samgrh. hefur haft ágæt orð um að niðurfellingin verði frá og með miðju næsta ári. Við viljum hnykkja á því núna fyrir 3. umr., og boðum brtt. um að þessi flugmiðaskattur verði endurgreiddur þeim sem hann hafa greitt allt síðasta ár. Þess vegna segjum við já við að fella niður flugleiðsögugjöld að þessu sinni.