Kristján Pálsson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég verð að segja að ég er dálítið hissa á því að Vinstri grænir skuli allir hafa vitað af þessu svona gjörla, vitandi það að tala mátti í 20 mínútur um hvert mál og tala sjálfir í 11 mínútur af þessum 20 og vera mjög ánægðir með það. Er það eitthvert lýðræði?
Ég velti því líka fyrir mér, hvernig er þá úthlutað á flokkana? Hvað fær hver flokkur mörg mál til þess að flytja hérna? Er það eftir stærð flokkanna eða eftir því hvað menn tala lengi eða hvað ræður því hvernig þessum fjölda mála er raðað niður á dagskrána?
Ég veit í sjálfu sér ekkert um hvernig aðrir flokkar fóru að því að raða þessu niður. Ég veit bara hvernig þetta var gert hjá okkur. Það var a.m.k. ekki haft samráð við mig um hvernig þetta var gert. Ég vil ítreka það að mér finnst sérstakt þegar ekki er lengur hægt að tala nema mjög takmarkað um þingmannamál.