Guðjón A. Kristjánsson:
Herra forseti. Ég er meðflutningsmaður að þessari ágætu þáltill. um stofnun embættis talsmanns útlendinga. Útlendingum hefur fjölgað verulega á Íslandi á undanförnum áratugum og eru nú um 15 þús. talsins á landinu öllu. Íslendingar hafa tekið vel á móti þessum þjóðfélagsþegnum og veitt þeim stuðning til að aðlagast íslensku samfélagi. En til að tryggja að útlendingar fái notið félagslegs jafnréttis er afar mikilvægt að þeir séu meðvitaðir um rétt sinn.
Eðli málsins samkvæmt eiga útlendingar oft erfitt með að sækja rétt sinn og því tel ég afar brýnt að þeir eigi sér lögskipaðan talsmann sem getur skorið úr um réttindamál þeirra. Ég minni á smáumræðu á Alþingi í tilefni þess að upplýst var að erlendir verkamenn hefðu starfað hér á landi án tilskilinna leyfa og verið hlunnfarnir í launum.
Verði embætti talsmanns útlendinga stofnað er það afar mikilvægt skref í þá átt að mótuð sé heildstæð stefna í málefnum útlendinga sem setjast að hér á landi og málefnum þeirra fundinn einn staður í kerfinu. Eins og staðan er í dag eru málefni útlendinga á mörgum stöðum í kerfinu. Æskilegast er að málefni útlendinga heyri undir eitt ráðuneyti en embætti talsmanns útlendinga mundi væntanlega tryggja að upplýsingar um réttindi og skyldur útlendinga lægju fyrir á einum stað.