Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson):
Herra forseti. Þetta var alveg stórmerkileg yfirlýsing af hálfu hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar. Hann hefur gert þá kröfu að Ríkisendurskoðun verði sett í það verk í gegnum forsn. og forseta þingsins að fara yfir pólitíska vinnu ríkisstjórnarinnar vegna sölu Símans. Það kemur mér afskaplega mikið á óvart ef Ríkisendurskoðun á að fara ofan í það, þ.e. að vegna þess stjórnarandstaðan og hv. þm. Vinstri grænna hafa kveinkað sér undan pólitískri vinnu á vettvangi ríkisstjórnarinnar þá eigi að fá Ríkisendurskoðun til þess að fara yfir það. Þetta er afar undarleg krafa og setur Ríkisendurskoðun í mikinn vanda.
Ég vænti þess að hv. þm. geri betri grein fyrir forsendunum sem hann er að fara fram á að unnið verði eftir þegar Ríkisendurskoðun fer ofan í vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í þessu verki. Þetta er afar undarleg krafa svo ekki sé meira sagt.