Árni Steinar Jóhannsson (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Varðandi frv. til laga um breytingu á iðnaðarlögum sem á að fara að greiða atkvæði um hafa komið fram milli umræðna nýjar upplýsingar, sérstaklega þær að stór hagsmunasamtök iðnaðarmanna telja sig ekki hafa átt eðlilegan aðgang að málinu. Ég átti fund með fulltrúum í morgun og mér finnst, virðulegi forseti, málið vera þess eðlis að ég geri þá kröfu að hv. iðnn. gefi þessum aðilum möguleika á því milli umræðna að koma á fund nefndarinnar áður en málið verður endanlega afgreitt. Verði sá háttur hafður á er ég ánægður með framgang mála. En gefi hv. iðnn. þessum aðilum ekki aðgang að málinu á milli umræðna tel ég mig ekki geta stutt frv. þó svo ég hafi fylgt því úr hlaði hingað til.