Verslun með áfengi og tóbak

Mánudaginn 04. febrúar 2002, kl. 20:37:10 (3974)

2002-02-04 20:37:10# 127. lþ. 68.11 fundur 135. mál: #A verslun með áfengi og tóbak# (smásöluverslun með áfengi) frv., ÞBack (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur, 127. lþ.

[20:37]

Þuríður Backman (andsvar):

Herra forseti. Ef það er tilfellið að hér sé verið að leggja til að inni í matvöruverslunum verði heimilt að selja í ákveðnu hillurými léttvín, bjór og sterka drykki verð ég að segja að þetta frv. til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak er enn þá verra en það þó virtist við fyrstu sýn.