Kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla

Þriðjudaginn 05. febrúar 2002, kl. 16:32:35 (4060)

2002-02-05 16:32:35# 127. lþ. 69.4 fundur 371. mál: #A kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla# (dreifing ösku, kirkjugarðaráð o.fl.) frv., KVM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 127. lþ.

[16:32]

Karl V. Matthíasson (andsvar):

Herra forseti. Ég tek heils hugar undir orð hv. þm. Guðrúnar Ögmundsdóttur. Það eru nefnilega margir fletir á þessu máli og þess vegna erum við einmitt að ræða það hérna og benda á öll þessi atriði sem við vonumst til að tekin verði til umfjöllunar í allshn. og að hún taki tillit til þeirrar umræðu sem fram hefur farið í þinginu við 1. umr. málsins.