Áhugamannahnefaleikar

Fimmtudaginn 07. febrúar 2002, kl. 14:02:44 (4254)

2002-02-07 14:02:44# 127. lþ. 73.7 fundur 39. mál: #A áhugamannahnefaleikar# frv. 9/2002, Frsm. minni hluta SJóh (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 127. lþ.

[14:02]

Frsm. minni hluta menntmn. (Sigríður Jóhannesdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mér kemur nú satt að segja á óvart sakleysi þessa hv. þm. sem hér hefur nýlokið máli sínu. Ég heyrði haft eftir formanni flokks hans að það sem væri erfiðast í pólitík væri þegar búið væri að kynna mál á þingflokksfundum og allir væru sammála en svo hlypu þingmenn út og suður eftir á. Einhvern tíma virðist því a.m.k. vera reynt að samræma sjónarmiðin í Sjálfstfl.