Guðjón Guðmundsson:
Herra forseti. Það er sjálfsagt að verða við þeim tilmælum að stilla þessum umræðum í hóf og það er rétt ábending hjá hæstv. forseta að auðvitað eiga þessar umræður í sjálfu sér ekki heima undir liðnum um fundarstjórn forseta. Ég vil aðeins taka undir það sem hér hefur komið fram að mér hefði fundist eðlilegra að Vinstri grænir flyttu þessa yfirlýsingu á næsta þingdegi, þ.e. þegar hæstv. forseti verður viðstaddur. Það hefði verið betri svipur á því.
Það sem rak mig í ræðustólinn var að útskýra það af hverju hæstv. forseti sleit fundi við umræðuna um Kárahnjúkavirkjun. Það var gagnrýnt í þessari yfirlýsingu að hann hefði slitið fundi klukkan sjö þegar enn voru nokkrir á mælendaskrá. Það hefur komið fram að ekki var gert ráð fyrir kvöldfundi þetta kvöld. Ég held að það hafi kannski verið annað sem vó þyngra. Klukkan sjö þetta kvöld hófst mikilvægur leikur í Evrópukeppninni í handbolta, leikur sem skar úr um það hvort Íslendingar kæmust í undanúrslit eða ekki. Og þó að einhverjum þyki það sjálfsagt léttvæg rök að stjórna fundum þingsins eftir því þá var það einfaldlega svo að þjóðin stóð öll á öndinni og fyrir þessu var gríðarlegur áhugi. Þótti einfaldlega rétt að gefa starfsmönnum Alþingis tækifæri á því eins og öðrum landsmönnum að eyða einni klukkustund í að horfa á þennan mikilvæga leik.