Árni Steinar Jóhannsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil spyrja hv. þm. Pétur H. Blöndal hvort hann sé ekki sammála mér um að ástæðan fyrir aukinni ásókn í lánafyrirgreiðslu Byggðastofnunar sé tregða stóru bankanna til að lána fyrirtækjum, sérstaklega fyrirtækjum á landsbyggðinni.
Svo vil ég spyrja hv. þm. hvort hann telji óeðlilegt að lánastofnanir vinni eins og t.d. sparisjóðir og einbeiti sér að útlánum staðbundið. Hefur hv. þm. eitthvað á móti bönkum eins og t.d. Norræna fjárfestingarbankanum, sem uppálagt er að stuðla að þróun og framförum á Norðurlöndum með því að lána til fyrirtækja á því svæði?