Íþróttamiðstöð Íslands að Laugarvatni

Miðvikudaginn 13. febrúar 2002, kl. 14:18:24 (4500)

2002-02-13 14:18:24# 127. lþ. 77.4 fundur 278. mál: #A Íþróttamiðstöð Íslands að Laugarvatni# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., KPál
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 127. lþ.

[14:18]

Kristján Pálsson:

Herra forseti. Ég varð var við það þegar ég var á ferð með fjárln. um Suðurland í haust og við hittum forsvarsmenn sveitarfélaga í Biskupstungum og uppsveitum Árnessýslu ásamt staðarhöldurum á Laugarvatni, að mikill áhugi var á þeirri skýrslu sem gefin hefur verið gefin út og hv. fyrirspyrjandi minntist hér á og þeirri uppbyggingu sem þeirri skýrslu átti að fylgja. Að mati flestra sem þarna voru á fundi með fjárln. yrði það mikið heillaspor ef hægt yrði að fara af stað með svipuðum aðferðum og þar voru hugsaðar.

Ég fagna því að búið skuli vera að skipa starfshóp undir stjórn Erlings Jóhannssonar og ég vona að það líti dagsins ljós við fjárlagagerðina í haust hvernig úr málinu verði unnið.