Fyrirspyrjandi (Gísli S. Einarsson):
Herra forseti. Vegna spurningarinnar um hvort ég sé tilbúinn að leggja niður vegaframkvæmdir á Vesturlandi næstu 16 árin ef gjaldið verði fellt út þá segi ég nei við því. Ég minni hv. þm. Kristján Pálsson á að eitt sinn var sett hér á veginnheimta eða tollur á Reykjanesbraut. Það var lagt niður eftir tvö ár þótt gert hefði verið ráð fyrir því til margra ára.
Mér finnst að að svo komnu máli sé rétt að kanna hvort ekki sé eðlilegt að þeir sem nota þessi jarðgöng mest sitji við sama borð og aðrir sem njóta vegaframkvæmda hér á landi án þess að greiða fyrir það sértakt gjald, burt séð frá því hvernig stofnað var til framkvæmdarinnar í upphafi.
Ég vil, virðulegur forseti, þakka hæstv. samgrh. fyrir þau svör sem hann gaf og þá sérstaklega fyrir fyrirheit hans um að taka þetta mál upp vegna næstu samgönguáætlunar. Þetta er mjög mikilsvert mál. Þarna eiga fleiri þúsund manns í hlut og einstaklingar eru að greiða allt upp í 300 til 400 þús. kr. á ári vegna ferða, vinnu og skóla sem þeir stunda á Reykjavíkursvæðinu. (Gripið fram í.) Þess vegna er eðlilegt (Gripið fram í.) að taka þetta mál fyrir á þennan máta sem ég er að leggja hér upp. Að öðrum kosti verður það þannig að þeir sem nota þessi göng hafa greitt, að liðnum starfstíma Spalar, yfir 20 milljarða og röska 3 milljarða bara í virðisaukaskatt.
Virðulegur forseti. Að öðru leyti læt ég þessu lokið í bili. Það er alltaf betra fyrir þann sem stendur í stól, þegar verið er að kalla fram í, að fá eina spurningu úr salnum fremur en langar ræður.