Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 11:31:08 (4631)

2002-02-14 11:31:08# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[11:31]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að þetta hljóti alltaf að verða mjög huglægt mat. Eftir því sem ég best veit eru aðrar þjóðir ekki langt komnar í sambandi við mat af þeirri gerð sem hv. þm. talar um. Ég tel því að það sé nánast útúrsnúningur hjá hv. þm. að gera þetta að aðalatriði í upphafi umræðunnar.