Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 11:37:02 (4640)

2002-02-14 11:37:02# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., ÞBack (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[11:37]

Þuríður Backman (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. iðnrh. las upp úr greinargerð og vitnaði í könnun um viðhorf ungs fólks og væntingar ungs fólks á Austurlandi til vinnu í álverinu og möguleika á menntun. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða áform hefur ríkisstjórnin um atvinnutækifæri og menntunarmöguleika ungs fólks ef ekki verður af álveri á Austurlandi? Þá er ég að tala um ungt fólk sem býr, hefur búið og vill búa á Austurlandi.