Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég sagði í ræðu minni að hv. 4. þm. Norðurl. e., Svanfríður Jónasdóttir, vildi ekki samþykkja frv. um Kárahnjúkavirkjun eins og það liggur hér fyrir. Nú skilst mér á hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur, 12. þm. Reykn., að það sé misskilningur og að hv. þm. Svanfríður Jónasdóttur vilji samþykkja frv. Við skulum bíða og sjá.