Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 15:21:51 (4687)

2002-02-14 15:21:51# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[15:21]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Líklega hefur hv. þm. Halldór Blöndal aldrei náð hærri hæðum í málflutningi sínum á hinu háa Alþingi. Þetta var fullkomlega óskiljanlegt andsvar, herra forseti, í engu samræmi við það sem ég sagði hér áðan og hv. þm. að sjálfsögðu fullkomlega ósamboðið. Hann veit fyllilega um hvað er verið að tala hér. Og það væri gott, herra forseti, ef hann svaraði spurningunni um afstöðu sjálfstæðismanna til frv. til raforkulaga.