Virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal

Fimmtudaginn 14. febrúar 2002, kl. 20:27:36 (4764)

2002-02-14 20:27:36# 127. lþ. 78.1 fundur 503. mál: #A virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal# frv., SI (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 127. lþ.

[20:27]

Sigríður Ingvarsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Hér eru að sjálfsögðu til umræðu núna virkjunarframkvæmdir og álver og þess vegna ræði ég þau mál hér en ekki sjávarútvegsmál og menntunarmál. Ég vil bara gera hv. þm. Jóni Bjarnasyni grein fyrir því. En að sjálfsögðu læt ég ekki standa á mér í mínum flokki þegar til kastanna kemur í þessum mikilvægu málaflokkum.