Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Varðandi framtíðina þá hefur verið gerð gagnger breyting á lífeyriskerfinu þannig að inn koma iðgjöld til að standa straum af kostnaði við útgjöldin, við réttindin sem eru í kerfinu. Við höfum farið inn í nýja hugsun að þessu leyti. Það er ekkert nýtt að fólk reyni að sá fræjum sundrungar innan verkalýðshreyfingar og benda á mismunandi kjör. Ég gat um það í ræðu minni áðan að sem betur fer hefði þróunin verið jákvæð fyrir allt launafólk á liðnum árum og ég vona að svo verði enn um sinn.
Hér er að mínum dómi verið að stíga framfaraskref fyrir þessa stétt, lögreglumenn, og að sjálfsögðu vonast ég til þess að aðrir hópar og aðrar stéttir muni einnig njóta góðs af þegar fram líða stundir. Ég horfi t.d. til sjúkrahúsanna hvað þetta snertir.