Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. telur að þetta vald sé vandmeðfarið. Vissulega er í frv. talað um heimild, ekki skyldu, en það er einmitt andstætt þeirri leið sem nágrannaþjóðir okkar hafa farið, t.d. Danir. Þar er lagt fortakslaust bann við því að hylja andlit sitt með nokkrum hætti, hvort sem það er með grímu eða hettu eða á annan hátt þannig að maður verði óþekkjanlegur. Og ekki nóg með það heldur er það einnig refsivert samkvæmt hegningarlögum, og því hægt að stöðva menn þess vegna fyrir að vera á leiðinni á einhvern mótmælafund eða á opinbera samkomu svona dulkæddur. Við förum ekki þá leið í þessu frv. En það er rétt hjá hv. þm. að lögreglan verður að leggja ákveðið mat á þessa hluti. En ég hygg að það fari ekki á milli mála ef til stendur að koma af stað einhverjum miklum mótmælaaðgerðum sem geta haft í för með sér hættu fyrir almenning, eignaspjöll o.s.frv. Ég hygg að það sé ekki tilviljun að þarna sé sérstaklega minnst á knattspyrnuleiki. Við þekkjum öll hvernig knattspyrnubullur hafa vaðið uppi í ýmsum löndum. Margar þjóðir í Evrópu hafa gripið til mjög harkalegra ráðstafana til þess að reyna að koma í veg fyrir að þessir aðilar fari á milli landa.