Guðmundur Árni Stefánsson:
Herra forseti. Þessi tregða hæstv. ríkisstjórnar til að veita sjálfsagðar upplýsingar til alþingismanna er með öllu ólíðandi. Hinu verður auðvitað ekki breytt að sannleikurinn er kominn fram að verulegu leyti. Ríkisstjórnin og forustumenn hennar hafa allt niður um sig í þessu símamáli. Sjálfstfl. hefur eftir 11 ára samfellda valdasetu við landsstjórnina sýnt að hann er hættur að gera greinarmun á flokkshagsmunum og þjóðarhagsmunum. Hann virðist ganga um þessi fyrirtæki þjóðarinnar, eins og Símann, eins og eigin prívatfyrirtæki. Mál er að linni.
Herra forseti. Það var haft eftir aðstoðarmanni samgrh. í útvarpi í gærkvöldi að það tvöfalda launakerfi, sem upplýst hefur verið um að stjórnarformaður Símans hefur búið við, sé alvanalegt í stjórnkerfinu og tíðkist þar mjög víða. Ég vil biðja hæstv. ráðherra að nefna fleiri dæmi af þeim toga því að ef svo er, þá er um grafalvarlegan hlut að ræða. Þetta var haft eftir aðstoðarmanni ráðherrans.
Því miður er það svo, herra forseti, að Ríkisendurskoðun, okkar tól og tæki á hinu háa Alþingi til að fara ofan í saumana á málum af þessum toga, hefur veikst talsvert vegna aðildar að málinu á fyrri stigum. Ég sé því ekki annað fært í þessu máli, herra forseti, en að farin verði leið okkar samfylkingarmanna, að efnt verði til sérstakrar rannsóknarnefndar með vísan til ákvæða stjórnarskrárinnar. Kjarni málsins er að mál er að linni. Draga verður fram þá sem hina pólitísku ábyrgð bera, ríkisstjórnina í heild en einkanlega og ekki síst Sjálfstfl. og forustu hans.