Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Það er alveg ljóst að hæstv. ráðherra ætlar að skorast undan því að benda á hvað það var í fyrirspurn minni sem brýtur í bága við hlutafélagalög. Hvað skaðar félagið í þeim fyrirspurnum sem ég lagði fyrir ráðherrann? Það getur ekki skaðað félagið að upplýsa hver beri ábyrgð á þessum starfslokasamningi eða hvort stjórnin hafi haft vitneskju um það. Ég átel þessi vinnubrögð hjá ráðherranum og hvernig hann lítilsvirðir þingið með því að koma ekki upp og gera nákvæmlega grein fyrir því sem er í fyrirspurninni og gengur gegn hlutafélagalögunum.
Herra forseti. Ég hefði haldið að hæstv. forseti hefði þann metnað fyrir hönd þingsins að hann gengi í lið með okkur þingmönnum til að við gætum náð vopnum okkar og sinnt eftirlitshlutverki okkar með framkvæmdarvaldinu. Hæstv. ráðherrar lítilsvirða þingið hins vegar ítrekað með því að svara ekki eðlilegum fyrirspurnum sem til þeirra er beint.
Það er alveg ljóst að ráðherrann virðist hafa eitthvað að fela í þessu máli. Það er miklu nær að ef hann upplýsti um svörin þá skaðaði það frekar hagsmuni ráðherrans en nokkurn tíma félagsins, eins og ráðherrann lætur hér.
Ég verð að segja að það að ráðherra flýr alltaf í skjól hlutafélagalaganna er óþolandi. Við sjáum hvernig subbuskapurinn þrífst í skjóli þessara hlutafélagalaga. Ráðherrarnir hlaupa þar í skjól og stjórnendur skammta sér laun og hlunnindi og sjálftökuliðið lifir góðu lífi á opinbera spenanum. Það verður að taka á þessum málum og veita þingmönnum þau tæki sem þarf til að þeir geti sinnt eftirlitshlutverki sínu.
Ég skora á hæstv. forseta að bregðast við þannig að ekki verði látið afskiptalaust þegar troðið er á rétti þingmanna og þingið lítilsvirt, herra forseti. Það hefur því miður verið að gerast á undanförnum árum.