Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég er ekki hissa á að hv. þm. vilji fjarlægja sig eins og hann getur frá þessari ríkisstjórn með því að taka það sérstaklega fram að hann sé ekki í ríkisstjórninni. Ég skal með glöðu geði samþykkja þá leiðréttingu. En hv. þm. er a.m.k. mikill stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar. Ég veit ekki annað en hann hafi stutt þau mál sem ríkisstjórnin lagt fram varðandi breytingu á húsnæðismálum nema ef vera skyldi húsaleigubæturnar sem hafa gagnast láglaunafólki mjög vel.
Eftir að hv. þm. hefur flutt slíkar ræður sem núna finnst mér hann skulda 2.000 einstaklingum og fjölskyldum á biðlista eftir leiguhúsnæði, af því að það hefur ekki í önnur hús að venda, lýsingu á því hvað þetta fólk á að gera. Þetta fólk hefur kannski 90--120 þús. kr. á mánuði og borgar 80 þús. kr. í leigu. Hvaða tillögur hefur hv. þm. fyrir þetta fólk? Hann skuldar því fólki að svara í hvaða hús það á að venda miðað við þær aðgerðir sem þessi ríkisstjórn hefur gert í húsnæðismálum.
Ég spyr hv. þm.: Telur hann það eðlilegt að ríkisstjórnin eigi að beita sér fyrir markaðsvöxtum á leiguíbúðum? Með hvaða afleiðingum, herra forseti? Sveitarfélögin munu ekki byggja leiguíbúðir. Þaðan af síður hafa félagasamtök efni á því. En hvar á þetta fólk að búa? Hvar eiga þessir 2000 einstaklingar og fjölskyldur að hafa þak yfir höfuðið? Ég skora á hv. þm. að svara þessu fólki sem kannski sér fram á 2--3 ára bið eftir því að fá leiguhúsnæði. Hvað á það að gera?