Árni Steinar Jóhannsson:
Herra forseti. Hér er til umræðu till. til þál. um átak til að auka framboð á leiguhúsnæði. Ég vil lýsa því yfir að ég held að þessi tillaga sé allra góðra gjalda verð og við hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði höfum lagt mikla áherslu á að sá húsnæðisvandi sem hér hefur skapast verði leystur. Hér eru settar fram hugmyndir sem hv. þm. Ögmundur Jónasson fór mjög rækilega yfir í ræðu sinni um aðkomu lífeyrissjóðanna. Þetta er mál sem hefur verið í gangi um tveggja til þriggja ára skeið og ætti að vera hægt að finna flöt á því ef stjórnvöld hefðu minnsta áhuga á því.
Ég tel þær hugmyndir sem hér eru settar fram góðra gjalda verðar en mig langar að benda á í þessu sambandi að staða höfuðborgarsvæðisins er náttúrlega mjög sérstök vegna ástandsins í landinu í heild sinni hvað varðar búferlaflutninga og náttúrlega ekki síður vegna aukinnar ásóknar í menntun á öllum stigum hingað til höfuðborgarsvæðisins. Þess vegna höfum við hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði --- og ég vil koma því inn í umræðuna að ég held að lausn á slíkum vanda sem þáltill. fjallar um verði e.t.v. að vera í þremur liðum. En til þess að leysa vandann á kannski mun skemmri tíma ættu stjórnvöld auðvitað að einhenda sér í að byggja ódýra stúdentagarða, bara sem dæmi, við háskólann, við framhaldsskólana og við sérskólana sem eru í gangi hér. Mjög mikil þörf er á því. Við sem komum utan af landi þekkjum vel að slagsmál eru um hverja íbúðarholu seinni hluta sumars og ungmenni utan af landi eru að slá sér saman um leiguíbúðir sem eru á bilinu 80--110 þús. kr. og búa kannski þrjú til fimm saman til þess að geta komið sér til náms. Þetta er stórvandamál sem hefur gríðarlegar aukaverkanir í för með sér og eðli málsins samkvæmt er stór þáttur í því að keyra hinn almenna markað upp. Þetta eru mál sem brenna virkilega á en aukið átak í þeim yrði til þess að létta þessu af.
Ég vil einnig nefna annað mál sem opinberir aðilar þyrftu að koma að, bæði ríki og bær. Það er verkefni sem hefur verið farið í í mörgum borgum í nágrenni við okkur í Evrópu og það er að framkalla áhuga á því að fara í endurbætur á gömlu húsnæði. Borgir eins og Kaupmannahöfn og Köln í Þýskalandi hafa farið í vinnu af þessu tagi. Þar hafa menn verið að spinna saman áhugann á því að auka líf og þar af leiðandi framboð á íbúðum í miðbæjunum, nýta pláss sem ekki er nýtt, bæði uppi á loftum og í kjöllurum og ekki síst að spinna þetta saman við að betrumbæta og lagfæra ásýnd borganna og hafa þá komið fram í því skyni með opinbert fé til skipta sem síðan hefur leitt til þess að viðkomandi íbúðir eru miklu ódýrari.
Það er alveg ljóst að leigumarkaðurinn á Íslandi er þess eðlis af einhverjum ástæðum að þeir sem eiga húsnæði --- það er svo dýrt að gera við það, koma því í leiguhæft stand að almenningur eða einstaklingur sem á slíkt húsnæði treystir sér ekki í að fara í endurbætur til þess að hafa af því tekjur á viðskiptagrundvelli. En með opinberum framlögum sem er búið að reyna eins og ég segi í mörgum borgum í Evrópu með mjög góðum árangri, hefur þetta tekist. Ég held að við þurfum að notfæra okkur allar matarholur sem eru tiltækar í þessu sambandi. Þessi þríliðun, stúdentagarðar, endurbætur á gömlu húsnæði, koma ónotuðu húsnæði í gagnið og síðan eins og þáltill. leggur aðaláherslu á, að fara í nýbyggingar á ódýrara húsnæði mundi verða til þess að koma þessum málum í miklu betra horf á tiltölulega stuttum tíma. Ég er alveg sannfærður um að það að setja fókusinn á stúdenta\-íbúðir mundi e.t.v. verða til þess að leysa vandamálið fljótar en kannski nokkur önnur aðgerð vegna þess að þetta er svo gríðarlegur fjöldi sem þarna er á ferðinni.
Aðeins um ástandið í borginni. Maður hefur orðið þess áskynja eftir að hafa eytt mestu af tímanum sl. þrjú í Reykjavík að ástandið er ömurlegt. Það er hellingur af fólki sem hefur samband, tugir og hundruð manna sem hafa hvergi höfði sínu að halla og eru upp á vini og kunningja komin með að fá að vera viku og viku. Ég held að allir hljóti að átta sig á því að þetta er gríðarlegt vandamál sem síðan leiðir af sér önnur vandamál í samfélaginu. Það er borðleggjandi. Þeir sem hafa enga rótfestu, ekkert heimili, leiðast auðveldar út í vandamál af öðru tagi sem eru bara afleidd af þessu upplausnarástandi og fólk sér enga möguleika.
Virðulegi forseti. Ég vildi í örstuttu máli lýsa ánægju minni með fram komna tillögu en vildi í umræðunni breikka þetta og taka inn þá möguleika sem annars staðar eru til þess að ná fljótvirkari árangri að mínu mati til að leysa þetta mál. Við hjá Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði höfum lagt ofurkapp á það að koma fram með tillögur sem geta stuðlað að lausn þessara mála og erum þess vegna samþykk og fögnum tillögunni.