Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):
Herra forseti. Hv. 13. þm. Reykv. talaði á tilfinningalegum nótum um pólitík í víðasta skilningi þess orðs. Hann talaði um Brussel og ýmislegt fleira. Hann ræddi líka um viðskiptahagsmuni. Auðvitað eru þetta allt saman viðkvæm mál. Það er mikið af góðu starfsfólki hjá Póstinum eins og hjá mjög mörgum öðrum fyrirtækjum og auðvitað er um viðskiptahagsmuni að ræða. Pósturinn er í samkeppni. Hann er í samkeppni við aðila sem dreifa pökkum, ég held að það heiti DHL Hraðflutningar. Pósturinn er í samkeppni við fjöldamörg fyrirtæki.
Pósturinn er t.d. líka í samkeppni við Morgunblaðið sem dreifir alls konar pósti með Mogganum. Þegar við fáum Moggann inn um blaðalúguna hjá okkur á morgnana fáum við oft ýmiss konar dreifibréf með blaðinu. Þetta snýst allt um viðskiptahagsmuni.
Hv. þm. talaði mikið um að þjónustu póstsins hefði hrakað. Það er bara alls ekki rétt hjá hv. þm. Ég veit ekki betur en t.d. í þéttbýli séu ábyrgðarbréf, bögglar og annað slíkt borin út. Það kemur sér t.d. afar vel fyrir þingmenn sem eru lengi í vinnunni á daginn og fólk sem ekki á möguleika á að komast í hin svokölluðu pósthús getur fengið slíkar sendingar heim. Á sama hátt er víða í dreifbýli farið að dreifa pósti fimm daga vikunnar. Það var áður gert þrjá daga vikunnar. Ég fer mjög gjarnan á fundi í dreifbýlinu. Fólk þar fagnar auðvitað mjög að fá póstinn daglega virka daga þannig að hér er á vissan hátt um bætta þjónustu að ræða.
Ég held að við ættum að gleðjast yfir þessum breytingum. En auðvitað eru breytingar í kerfinu hjá póstinum eins og í öllu öðru. Einu sinni voru til símstöðvar. Ég sakna þeirra tíma er maður hringdi í símstöðina og bað um ákveðin númer og fékk svör frá ágætismanneskjum sem unnu á símstöðvum í eina tíð.