Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Herra forseti. Þetta var afskaplega skýrt á sama hátt, og ég bið hv. þm. að upplýsa mig og aðra hv. þingmenn um það hvort yfirleitt sé þingmeirihluti fyrir þessu máli. Eru margir aðrir í þingflokki hv. þm., Sjálfstfl., sem hafa svipaða fyrirvara? Ég spyr á nýjan leik: Er þess þá að vænta að hæstv. ráðherra hafi ekki þingmeirihluta að baki þegar hún fer fram með þetta mál?
Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að nota þessa ferð til að vekja einnig á því athygli, og ætla ég ekki að fara að standa til varnar fyrir Framsfl. í þessum efnum, en ég vil minna hv. þm. á að það var hans eigin formaður, forsrh. sjálfur, sem fór með þennan málaflokk í heil tíu ár með þeim afleiðingum og þeirri niðurstöðu sem við okkur blasir. Er það nú orðið gleymt og grafið?