Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Nú er svo að skilja á svari hv. þm. Einars Odds Kristjánssonar að hann sé ekki að gagnrýna útþenslu ríkisbáknsins, heldur hvar þessi útþensla eigi sér stað. Þá vil ég spyrja hann nánar: Hvernig getur hann stutt ríkisstjórn sem hefur verið að veikja þjónustustarfsemi á vegum hins opinbera, ekki síst á landsbyggðinni, með einkavæðingarstefnu sinni og öðrum hætti, en hefur á hinn bóginn einblínt á þá lausn eina að flytja stjórnsýslu, stjórnsýslustöðvar út á landsbyggðina á sama tíma og hún er að veikja aðra starfsemi? Þetta birtist okkur mjög skýrt t.d. í útvarpsrekstrinum. Þar stendur til að færa stjórnsýslu til Akureyrar á sama tíma og menn hafa verið að veikja grundvöll Ríkisútvarpsins til að sinna landsbyggðinni í þeirri starfsemi sem þar fer fram.
Eins ítreka ég það að sú stefna sem ríkisstjórnin hefur fylgt á sviði einkavæðingarmála hefur grafið undan landsbyggðinni. Ég sakna þess að hv. þm. beini sjónum sínum að þessum atriðum.