Þuríður Backman:
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa fyrirspurn sem getur upplýst okkur svolítið frekar um framtíðarhorfur í heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem hæstv. ráðherra hefur lýst því yfir að hann muni ekki styðja það að tvö heilbrigðiskerfi verði í gangi langar mig til að biðja hann í þessari umræðu að útskýra betur fyrir okkur hvernig greiðslum Tryggingastofnunar verður háttað til þeirra einstaklinga sem munu skrá sig í hina nýju heilsugæslustöð, Læknalind, sem verður opnuð formlega á morgun. Eins og kunnugt er verður þar um að ræða fasta kúnna sem munu greiða fast mánaðargjald, og svo geta komið inn einstaklingar án þess að vera þar skráðir. Hvernig verður greiðslu vegna þeirra háttað? Það er mikilvægt að fá upplýsingar um þetta því að á meðan hæstv. ráðherra lætur líka afskiptalaust að heilsugæslustöð eins og Læknalind starfi er hann í raun að leggja blessun sína yfir tvöfalt kerfi.