Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Það er ljótt að vera að trufla samkvæmið þegar menn eru að hefja sig upp í mikla stemmningu. Staðreyndin er hins vegar sú að vísindarannsóknir á Íslandi búa við mjög þröngan kost, og allt of þröngan kost. Nú erum við að ræða hér þrjú frv. til laga sem munu þrengja að vísindunum í þeim skilningi að þau verða niðurnjörvuð á stefnu stjórnvalda. Það eru vissulega ýmsir vaxtarsprotar hér, til marks um það er Íslensk erfðagreining sem menn hafa haft ýmsar skoðanir á en við blasir í Vatnsmýrinni sá munur sem annars vegar er á högum þess fyrirtækis og hins vegar Háskóla Íslands. Hér hefur staðið hálfkarað í Vatnsmýrinni glæsilegt hús Náttúrufræðistofnunar. Því er ekki lokið og háskólanum hefur ekki verið heimilað að taka lán til að ljúka við þá byggingu, eða var a.m.k. ekki til skamms tíma. Hún stóð því hálfkláruð á sama tíma og glæsilegt húsnæði Íslenskrar erfðagreiningar var reist. Rannís hefur haft allt of takmarkaða fjármuni. Þeir hefðu þurft að margfaldast til að koma að notum. Ef við berum saman það fjármagn annars vegar og hitt sem Íslensk erfðagreining hefur haft til ráðstöfunar er himinn og haf á milli. Og allt eru þetta fjármunir sem eru teknir út úr íslensku efnahagskerfi, við skulum ekki gleyma því.
Ég vara við þeirri hugsun og þeirri stefnu sem hér hefur verið fylgt, að lækka stöðugt skatta á fyrirtækin og núna hugsanlega að fara að ívilna fyrirtækjum sem ráða vísindamenn til starfa, eins og hv. þm. Össur Skarphéðinsson stakk upp á áðan, í stað þess að tryggja þessum vísindastofnunum framlag sem þær síðan ráðstafa sjálfar. Hér er verið að færa valdið yfir rannsóknunum undir markaðinn og undir þessi arðsemissjónarmið sem við ræddum lítillega áðan, ég og hv. þm. Össur Skarphéðinsson. Ég tel að hér sé verið að fara inn á rangar brautir. Það er verið að þrengja, það er verið að draga úr og skerða frelsi vísindamanna til rannsókna og því miður getur ríkisstjórnin ekki hælt sér af því framlagi sem látið er af hendi rakna úr almannasjóðum til vísindarannsókna á Íslandi.